Auglýsing

Atburđarteljari

Klukkan

Könnun

Ţađ er skemmtilegast ađ:

Leikur dagsins

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Frí á föstudaginn

04. mars 2009 klukkan 10:08

Út af því að við kepptum á Íslandsmeistaramótinu um helgina þá ákváðum við að hafa létta viku!
Þess vegna höfum við bara verið í leikjum og hafa gaman!

Á föstudaginn er frí á æfingu

Svo byrjar fjörið aftur í næstu viku!

ÁFRAM FH

kv. Silja

Foreldraćfing og Foreldrafundur í kvöld!

02. mars 2009 klukkan 13:14

Hæ hó og takk kærlega fyrir frábæra helgi! Krakkarnir stóðu sig alveg frábærlega og við Iðunn erum alveg í skýjunum yfir góðum árangri.

Ég minni á æfingu í kvöld frá kl. 19-21 - en foreldrarnir eru velkomnir með og gaman væri ef þau tækju smá þátt, einnig ætlum við að vera með smá foreldrafund og ræða sumarið og fleira í þeim dúr.

Hlakka til að sjá ykkur

kv. Silja

Ćfing í höllinni

26. febrúar 2009 klukkan 17:08

Dí komst ekki inn í kerfið fyrr...

Í kvöld fimmtudag 26. febrúar erum við með æfingu inni í Laugardalshöll kl. 20-21! mæting innfrá ég verð þar!

Sjáumst vonandi sem flest!

Silja

Meistaramótiđ

24. febrúar 2009 klukkan 10:51

Íslandsmeistaramótið okkar er næstu helgi laugardaginn 28. Feb og sunnudaginn 1. Mars. Ég verð að skrá á þriðjudeginum og ég mun skrá alla - en ef þið ætlið EKKI að keppa látið mig þá vita sem fyrst - helst í email siljaulf@gmail.com - annars sleppur að láta mig vita á æfingu á þriðjudeginum. FH sér um skráningagjöldin á mótið (og við viljum ekki að þeir borgi fyrir einhverja sem keppa svo ekki) - svo það eina sem þið þurfið að hugsa um er að gera ykkar besta og hafa gaman af.  

Strákaflokkur og stelpnaflokkur 11 ára: 60 m hlaup, 800 m hlaup, hástökk, langstökk, kúluvarp og 4x200 m boðhlaup.

Strákaflokkur og stelpnaflokkur 12 ára: 60 m hlaup, 800 m hlaup, hástökk, langstökk, kúluvarp og 4x200 m boðhlaup.

Piltaflokkur 13 ára og telpnaflokkur 13 ára: 60 m hlaup, 60 m grindahlaup, 800 m hlaup, hástökk, langstökk, kúluvarp og 4x200 m boðhlaup.

Piltaflokkur 14 ára og telpnaflokkur 14 ára: 60 m hlaup, 60 m grindahlaup, 800 m hlaup, hástökk, langstökk, kúluvarp og 4x200 m boðhlaup. 

** Boðhlaupið - það eru 4 í hverri sveit, 200 metrar er einn hringur, ég og Iðunn setjum í sveitirnar þess vegna er nauðsynlegt að vita hverjir keppa ekki svo við getum sett þær saman sem fyrst.

 

Nafnakall fer fram á keppnisstað - 10 mín fyrir hlaup og 20 mín fyrir aðrar greinar. Í kúluvarpi og langstökki fá allir 3 tilraunir en átta bestu fá síðan 3 tilraunir í viðbót. Í 60m og 60 grind þá komst 8 bestu tímarnir í úrslit.

Fyrstu þrír fá  verðlaun, keppt er um stigabikar í hverjum aldursflokki, efstu 10 keppendur í hverri grein fá stig. Við teljum okkur eiga góðan séns að fá stigabikara í einhverjum flokkum - nú setjum við okkur markmið saman að gera okkar besta!

Verum í FH bolunum okkar (ef ykkur vantar þá þá getið þið talað við Elínu á oliprik.is) og svörtum buxum, ég mun koma með gaddaskó töskuna með mér.

*******

Á mánudaginn 2. Mars erum við með æfingu eins og venjulega frá 19-21 - nema við ætlum að bjóða foreldrunum á æfingu með okkur að taka aðeins á því og leika sér með okkur ;) en við ætlum að hafa smá foreldrafund á æfingunni - við þurfum að mynda foreldraráð þar sem við keppum úti á landi í sumar og þurfum fjáröflun, og getum undirbúið margt annað skemmtilegt saman.

Kær kveðja

Silja Úlfars s. 698-3223 email siljaulf@gmail.com

til að skoða tímaseðil og annað um mótið getið þið farið á http://fri.is/pages/articles6/motaforrit/ 

Vinamiđar!

15. febrúar 2009 klukkan 06:47
Hæ hó ...

Vildi minna á að við létum ykkur hafa vinamiða og vinaæfingin er á mánudaginn 16. febrúar (morgun). Endilega komið með einhvern vin með ykkur á æfingu - vonandi byrja einhverjir að æfa ;) Þetta er ekkert nauðsynlegt en gæti verið skemmtilegt! Við Iðunn skulum hafa æfinguna skemmtilega og fjölbreytilega! Ef þið fenguð ekki vinamiða þá þurfið þið samt ekkert að hafa áhyggjur af þessu! ;)

Einnig eru núna 2 vikur í Íslandsmót - vá hvað það verður gaman hjá okkur, og gaman að bæta sig - ef þið eigið ekki boli þá mæli ég með að þið skoðið
www.oliprik.is þar er hægt að fá boli (segið mömmu og pabba frá þessu).

Iðunn er núna að setja upp símaskrá sem við setjum hérna á heimasíðuna með símanúmerum ykkar, emailum (msn) og þess háttar svo þið getið nú hist eitthvað fyrir utan æfingar - við Iðunn hvetjum ykkur endilega til þess!

Einnig ef þið takið myndir á æfingum eða mótum þá getið þið endilega sent mér eða Iðunni þær og við skulum setja þær inn á netið ;)

Sjáumst hress á mánudaginn - vinadaginn!

kveðja
Silja og Iðunn

Ný vika byrjuđ!

20. janúar 2009 klukkan 09:23

Við áttum rosalega flotta æfingu í gær... við erum ekkert smá ánægðar með ykkur!!! Væri ekki hissa að heyra að þið væruð með harðsperrur í dag... Wink Við tókum góðan þrekhring og hlupum vel í spilaleiknum!

Við Iðunn erum einnig ánægð með spjallið okkar í gær og vonum að þið farið nú að taka meira á því á æfingu - en ekki fara alltaf auðveldustu leiðina - þýðir ekkert að vera hræddur við að verða þreyttur - þú bætir þig mest með því að taka á því á æfingu!

Æfingar vikunnar eru svona:

Þriðjudag kl. 17-18 Kapla - Fáum leynigest, hún er útlensk svo æfið spurningar á ensku, einnig myndi ég koma með eitthvað til að árita á - hún er rooosalega góð! Cool

Miðvikudag er handboltaleikur og æfingin fellur niður - EN - við ætlum í sund saman - hittumst í Ásvallalaug kl. 18 og verðum til 19.30, við ætlum að prófa smáveigis (kemur í ljós) og svo getið þið leikið ykkur eftir á. Þið komið með pening - ég er ekki klár hvað kostar í sund.

Föstudag kl. 18-19 í Setbergsskóla - föstudagur er leikjadagurinn okkar - en búist samt við smá þreki.

Núna eru 6 vikur í Íslandsmeistaramót og við ætlum öll að setja okkur markmið og reyna að bæta okkur enn meira - við skorum á ykkur til að æfa vel næstu vikur og sjá hvað það er gaman að bæta sig!!!

Sjáumst í kvöld!

Silja og Iðunn

Úrslit

18. janúar 2009 klukkan 23:01

Þetta var aldeilis flott helgi hjá okkur... okkur gekk vel í heildina finnst mér!

Sumir bættu sinn besta árangur, sumir voru nálægt sínu besta, sumir fengu verðlaun, sumir lærðu eitthvað af mótinu, en við öll skemmtum okkur konunglega... Þetta var frábært mót hjá ykkur!

Stundum gengur ekki vel og það má ekki láta það eyðileggja allt annað - svona eru íþróttirnar gengur upp og niður og við verðum bara að læra af því sem fer ekki eins og við vildum - svoleiðis verðum við betri íþróttamenn!

Ég og Iðunn ætlum að setjast niður og fara yfir málin og þurfum að bæta það sem má og þarf að bæta, svo kannski breytist prógrammið aðeins á næstu vikum - Íslandsmeistarmótið er 1. mars og ætlum við öll að standa okkur vel þar!

En hérna getið þið skoðað úrslitin frá mótinu og flett ykkur upp!
www.fri.is kíkið í mótaskrá og svo á Stórmót ÍR eða notið þennan link:
http://fri.is/pages/articles6/motaforrit/

Sjáumst á æfingu á mánudaginn kl. 19 eiturhress!

kv. Silja

Stórmót ÍR - Tímaseđill

16. janúar 2009 klukkan 22:16

Jæja hérna kemur tímaseðill morgundagsins - svoldið seint en ég var búin að segja ykkur hvenær þið eigið að mæta! Hérna getið þið líka skoðað hann á frí síðunni og öll úrslit

http://fri.is/pages/articles6/motaforrit/

best væri ef þið mættuð allaveganar 45 mín fyrir grein, og hitið upp, finnið mig og ég læt ykkur væntanlega fá númer, verið í FH bolunum, takið með ykkur nesti, góða skapið og auðvitað keppnisskapið!

LAUGARDAGUR!

Stelpur og strákar 12 ára!
9.00 - strákar  - langstökk
9.00 - stelpur  - hástökk
10.30 - stelpur - 60m
10.30 - strákar - kúluvarp
11.30 - strákar - hástökk
11.30 - stelpur - langstökk
12.30 - strákar - 60m
13.00 - stelpur - 60m grind
13.30 - stelpur - kúluvarp
13.30 - strákar - 800m
14.00 - strákar - 60m grind
14.30 - stelpur - 800m

Telpur og Piltar 13-14 ára!
12.00 - telpur - kúluvarp
12.00 - piltar - kúluvarp
14.00 - telpur - hástökk
14.00 - piltar - hástökk
15.00 - telpur - 60m
15.10 - telpur - 800m
15.30 - piltar - 60m
15.40 - piltar 800m

SUNNUDAGUR
!Telpur og piltar aðeins
9.30 - telpur - 60m grind
9.30 - piltar - 200m
9.45 - telpur - langstökk
10.20 - piltar - 60m grind
11.00 - telpur - 200m
11.15 - piltar - langstökk

Sjáumst hress um helgina! Þið megið taka myndir og svo senda mér þær og ég skal setja þær inn á síðuna!

kveðja
Silja

Stórmót ÍR nálgast

13. janúar 2009 klukkan 14:48
Um helgina er Stórmót ÍR 17-18 janúar - það er ekki ennþá búið að gefa út tímaseðil en það verður vonandi sem fyrst. Hann mun birtast á www.fri.is - motaskrá - Stórmót ÍR. Ég mun einnig setja hann á heimasíðuna.

12 ára (strákar og stelpur heitir flokkurinn ykkar) keppir á laugardaginn frá 9.00 - 14.30 í 60m, 60m grindarhlaupi, 800m, langstökki, hástökki, og kúluvarpi.

13-14 ára  (piltar og telpur heitir flokkurinn ykkar) keppir á laugardegi frá 12-15.40 í 60m, 800m, hástökki, stangarstökki og kúluvarpi, OG á Sunnudaginn frá 9.00 - 13.00 í 60 grind, 200m, og langstökki.

Þetta er svoldið langur tími svo við skulum öll vera með hollt nesti með okkur og vatnsbrúsa. Ég og Iðunn komum með gaddaskó töskuna sem við ætlum öll að nota saman.

Það kostar 2.000kr. á manninn til að keppa og ég þarf að fá þetta greitt sem fyrst, sumir eru búnir að borga, aðrir borga í dag, og foreldrar ef þið viljið þá getið þið lagt inn á mig - en verðið að skrifa nafn barns svo ég viti hver er að borga hvað. Reikningurinn minn er 0140-26-230681 kt. 230681-3339.

Einnig þá væri gott ef foreldrarnir sendu mér email á siljaulf@gmail.com þar sem ég er með marga emaila sem virka ekki og fæ þá senda aftur og veit þá ekki hverjir fá ekki emailana - það væri þæginlegast fyrir mig ef þið gerðuð þetta svona. Endilega segið mér hvað þið fenguð í jólagjöf og nafn barnsins ...

Ég mæli með fyrir restina á vikunni að afreksmennirnir okkar fái góðan svefn, sleppi öllu nammi og sætindum, og borði hollan og góðan mat alla vikuna. En svo skora ég á foreldrana að bjóða afreksmönnunum upp á ís eftir mót!

Annað það væri rosalega sniðugt ef þið mynduð finna besta árangur íþróttamannanna og vita það á mótinu, þá verður þetta svoldið spennandi! Þið getið fundið árangur á www.fri.is annaðhvort undir afrekaskrá eða farið í Mótaforrit og fundið Silfurleikar og flett upp árangri síðan þá.

Sjáumst hress um helgina

Silja og Iðunn

Frjalsar.bloggar.is

Stórmót ÍR 17-18 janúar

09. janúar 2009 klukkan 15:29
 

Stórmót ÍR er hluti af stórri íþróttahátíð í Laugardalnum „Reykjavík International Games". Á mótinu er einnig keppt í sundi, skylmingum, dansi, júdó, fimleikum, skautadansi, íshokkí, keilu og badminton.

12 ára strákar og stelpur (fædd 97) keppa á laugardeginum frá 9.00 - 14.30: 60m, 60m grindarhlaup, 800, langstökk, hástökk og kúluvarp.

13-14 ára piltar og telpur (fædd 96 og 95) keppa á laugardegi frá 12-15.40 í 60m, 800m, hástökk, stangarstökk og kúluvarpi. Á sunnudegi frá 9.00 - 11.50 í 60 grindarhlaupi, 200m, og langstökki.

Öllum er boðið á setningarathöfn leikanna og í sundlaugapartý í Laugardalslaug föstudagskvöldið 16. janúar frá kl. 19.00 (Silja og Iðunn verða EKKI á svæðinu).

Einnig er lokaathöfn í Laugardalshöll sunnudagskvöldið 18. Janúar kl. 19.00. þar verða afhent verðlaun fyrir bestu afrek í hverri grein (frjálsar, sund, dans o.s.frv.), fjölbreytt skemmtiatriði og endað með dansleik þar sem Svitabandið leikur. (Silja og Iðunn verða EKKI á svæðinu)

Allir þátttakendur Stórmótsins fá frítt inn á alla íþróttaviðburði, setningarathöfn, sundlaugarpartý og lokaathöfnina.

Nánari upplýsingar um mótið eru á www.rig.is

Ég verð að skrá fyrir þriðjudaginn 13. Janúar svo ef þið ætlið að taka þátt þá verðið þið að láta mig vita í seinasta lagi 12. Janúar! Það kostar 2.000 krónur fyrir hvern þátttakanda, þið borgið mér á æfingu fyrir 13. Janúar.

Endalegur tímaseðill verður ekki gefin upp fyrr en eftir að skráningu lýkur.

Hvet ALLA til að taka þátt og keppa í sem flestum greinum! Þeir sem kepptu á Silfurleikunum seinast hafa nú árangur og markmiðið er auðvitað að bæta þann árangur og hafa gaman af!

Kveðja

Silja Úlfars (698-3223 og siljaulf@gmail.com) og Iðunn
http://fhfrjalsar.bloggar.is/