Hæ svoldið langt síðan við blogguðum seinast... hummm!
Heyrðu æfingarnar hjá okkur ganga alveg rosalega vel - held við erum öll sammála því! En það er mánuður í fyrsta mót - minnir að það sé 22. nóvember - Silfurleikar ÍR!
Við vorum að mæla atrennur í langstökki og þrístökki um daginn, verðum að vera svoldið professional hérna!
Annars er ég að skoða með búninga, talaði við saumakonuna, en núna er spurning hvort það sé til efni í búninga, og hvort það sé nokkuð orðið of dýrt, þar sem þetta á ekki að vera dýrt! Ef það klikkar þá ætlum við að prenta á boli sem við keppum öll í!
Það er mánudagur á morgun sem þýðir að nýr gestur kemur... dadadadaaaaa! Hoppum og skoppum svoldið (þetta er vísbending) - svo mætið með eitthvað til að árita ef þið viljið!
Svo fer ég bráðum að senda út gíróseðla til foreldranna, það er á "to do" listanum mínum!
En sjáumst hress í vikunni!
Silja